www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Um vefinn

Vefurinn www.kennarasogur.is er meistaraverkefni mitt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ég er grunnskólakennari og hef lokið framhaldsnámi í tölvu- og uppslýsingatækni frá Kennaraháskóla Íslands og er núna að ljúka meistarprófsnámi í menntunarfræðum við Háskóla Íslands.

Vefurinn er upplýsinga- og gagnagrunnsvefur fyrir kennara og skólafólk. Vefurinn er annars vegar fræðsluvefur um starfendarannsóknir og hins vegar vefur með reynslusögum úr skólastarfi.

Í starfendarannsóknar hluta vefsins má finna ýmsar upplýsingar um starfendarannsóknir í skólum og upplýsingar um hvað kennari þarf að gera ef hann vill stunda starfendarannsókn. Leitast er við að svara ýmsum spurningum hjá þeim sem íhuga að hefja starfendarannsókn. Margar gagnlegar og góðar upplýsingar voru fengnar úr bók Jean McNiff og Jack Whitehead: Action Research for Teachers. A practical guide. Einnig var stuðst við annað efni um starfendarannsóknir.

Í reynslusöguhlutanum eru sögur frá kennurum þar sem þeir segja frá ýmsu sem vel hefur gengið í kennslu eða öðru skólastarfi. Þetta eru frásagnir frá kennurum og skólafólki sem hefur verið að þróa sig í starfi og fundið jákvæðar og gagnlegar lausnir á ýmsum vandamálum. Allir geta sagt sína sögu og fengið hana birta með því að senda sögu í tölvupósti á umsjónarmann síðunnar á netfangið:
kennarasogur (hjá) gmail.com

 

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is