Hvað er starfendarannsókn?
Hvers
vegna ætti ég að rannsaka eigið starf?
Hvað
þarf ég að gera?
Þurfa
allir í skólanum að taka þátt?
Hvernig
bý ég til áætlun?
Hvernig
safna ég gögnum? (skráning)
Hvað
geri ég við niðurstöðurnar?
Hvers
vegna að deila sögunni með öðrum? |
Þrátt
fyrir að starfendarannsókn sé fyrst og fremst
fyrir rannsakandann sjálfan þá getur verið
gagnlegt fyrir aðra að nýta sér niðurstöðurnar.
Þegar niðurstöður rannsóknar liggja
fyrir getur kennarinn/rannsakandinn komið þeim á
framfæri með ýmsum hætti. Til dæmis
með því að kynna þær á
kennarafundi í skólanum eða í öðrum
skólum. Einnig á ráðstefnum eða
á málstofum hjá skólafólki.
Ein
leið til þess að kynna niðurstöður
er að birta stuttar sögur út kennslunni á kennarasöguvefnum þar sem
aðrir geta lesið og fræðst um það
sem vel er gert í skólastarfi. Sögurnar þurfa
ekki að vera langar eða fræðilegar heldur
er megintilgangurinn að segja frá reynslu úr
kennslu þar sem kennarinn hefur prófað nýja
hluti með góðum árangri.
Til
að birta sögu á kennarasöguvefnum þarf ekki liggja fyrir ítarleg rannsókn
á viðfangsefninu heldur er markmiðið að
koma á framfæri jákvæðum breytingum
úr kennslu og skólastarfi, breytingum sem hafa
gefið góða raun og stuðlað að bættu
skólastarfi. Þessar sögur þurfa ekki
að vera langar eða ítarlegar en þar þarf
að koma fram um hvers konar vandamál var að etja, hvað var gert og hvernig gekk. Hér er hægt að nálgast eyðublað sem gott
er að styðjast við áður en sagan er sett
á vefinn. |