www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Hvað er starfendarannsókn?

Hvað er starfendarannsókn?

Hvers vegna ætti ég að rannsaka eigið starf?

Hvað þarf ég að gera?

Þurfa allir í skólanum að taka þátt?

Hvernig bý ég til áætlun?

Hvernig safna ég gögnum? (skráning)

Hvað geri ég við niðurstöðurnar?

Hvers vegna að deila sögunni með öðrum?

Í hefðbundnum rannsóknum er rannsakandinn að skoða og rannsaka störf annarra en í starfendarannsóknum er rannsakandinn að rannsaka eigið starf. Hann er þá í raun bæði rannsakandinn og viðfangsefnið. Starfendarannsókn er eins konar sjálfsskoðun þar sem rannsakandinn skoðar eigin gildi og eigin viðhorf. Rannsóknarefnið er ,,Ég sjálf(ur)".

Rannsakandinn skoðar eigið líf og vinnu og spyr sjálfan sig hvers vegna hann gerir það sem hann gerir og hvers vegna hann gerir það svona en ekki öðruvísi. Hann metur hvort að starfið hans sé eins og hann vill hafa það og hvort að hann sé ánægður í starfinu eins og það er.

Starfendarannsókn eykur starfsánægju og hjálpar til við að lifa og starfa á þann hátt að maður sé ánægður á vinnustað og ánægður með starf sitt.

 

 

 

 

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is