Þessa aðferð er hægt að nota í ýmsum námsgreinum og snýst um að safna upplýsingum frá nemendum.
Kennarinn setur nokkur blöð uppá vegg þar sem hvert blað er með ólíkum stikkorðum, hugtökum eða stuttum vangaveltum. Nemendur ganga um stofuna og skrifa á blöðin sínar athugasemdir, svör eða hugleiðingar. Þeir mega líka skrifa athugasemdir við það sem hinir hafa skrifað.
Síðan þegar búið er að skrifa nokkrar athugasemdir á öll blöðin þá er nemendum skipt í hópa og hver hópur fær eitt af blöðunum og ræðir það sem þar er skrifað. Hópurinn safnar saman niðurstöðunum og kynnir fyrir hinum í bekknum.
Þessi aðferð er mjög góð til að safna saman þekkingu í nemendahópnum. Það fer svo eftir aldri og þroska nemenda hvaða viðfangsefni eru tekin fyrir.
|