www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Að véfengja rétt svar

Meginatriði í þessari aðferð er að hvetja nemendur til að véfengja svarið sem stendur í bókinni eða það sem kennarinn segir að sé ,,rétt” svar og koma með nýjar lausnir.

Dæmi: Nokkrar staðreyndir og skýringarmyndir voru gefnar um agnir í vökvum, föstu efni og gastegundum í 8.bekk. Ekki voru allar staðreyndirnar sem kennarinn vildi koma á framfæri gefnar og því komu ekki fram fullkomnar skýringar á ýmsu varðandi hegðun og eiginleikar vökva, fasts efnis og gass.
Nemendur voru hvattir til að véfengja þær staðreyndir sem komu fram með því að benda á (og rökstyðja) atriði sem voru ótrúleg. Þeir bjuggu til spurningar og áskoranir sem þeir söfnuðu saman í lista:
-Ef agnirnar í borðinu eru á hreyfingu hvers vegna finn ég ekki fyrir þeim?
-Hvers vegna fyllist ekki gatið á borðinu af ögnum?
-Af hverju lekur vatnið í glasinu ekki á milli agnanna sem glasið er búið til úr?

Þessar spurningar hvetja nemendur til að velta fyrir sér ýmsum vísbendingum úr staðreyndunum sem þeir hafa frá kennaranum (eða úr bókinni) þannig að þeir fara að leyta að nýjum upplýsingum til að svara spurningunum sínum. Þannig koma nýjar upplýsingar fram sem eru sprottnar úr hugmyndum og spurningum nemendanna sjálfra.

Reynslan hefur sýnt að sumir nemendur sem sýna að öllu jöfnu ekki mikinn árangur í námi geta verið mjög góðir í að finna það sem á vantar í réttu svörunum. Það eykur sjálfstraust þeirra að geta komið með gagnlegar ábendingar í slíkri vinnu.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is