www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Þýskukennsla

Skilaverkefni sem ferðaþjónustuauglýsing í Þýsku III

Í framhaldsskólunum vinna þýskukennarar á Íslandi í flestum tilfellum mikið með bókina Þýska fyrir þig. Þetta er ágætis bók fyrir nemendur sem eiga erfitt með að skilja málfræði t.d. á þýsku af því að allt er útskýrt (líka) á íslensku. Í könnunum voru nemendur yfirleitt mjög ánægðir með bókina en stundum finnst þeim textarnir vera eitthvað lítlausir. Það á sérstaklega við um síðustu kaflana sem innhalda mikið af “þurrum” upplýsingum um Sviss t.d. tölur um borgina St. Moritz, hvað eru margir íbúar, hvað eru fjöllin há í kring o.s.frv.

Til þess að vekja áhuga nemendanna á landinu getur maður líka notað textann en þarf að nota hann á annan hátt. Þá er möguleiki í framhaldsskólum að láta þá skrifa skilaverkefni sem gengur út frá textanum. Nemendur búa til ferðaþjónustuauglýsingu á þýsku um St. Moritz, Zermatt eða Rhínardalinn í Sviss.

Til þess er nauðsynlegt að styðjast við bókina og auðvitað netið og taka inn myndir. Best er að nota forritið “Publisher”. Kennarinn þarf líka að segja nemendunum að ekki sé leyft að millifæra ( “copy paste”) eitthvað sem þeir geta fundið á netinu eða taka eitthvað beint upp úr bókinni.

Nemendurnir eru þar að auki að nota þýska tungumálið til þess að útskýra hluti og vekja áhuga ferðamanna og með þeim hætti að þjálfa sig í að skrifa texta á þýsku.

Þá væri líka möguleiki fyrir hendi að segja þeim að búa til auglýsingu um staði sem eru ekki eins vel þekktir, t.d. um Regensburg í Suður-Þýskalandi. Nemendurnir læra á þennan hátt líka mikið um landið (landafræði).

Verkefnið var skemmtilegt að sögn nemendanna og þeir lærðu meira um þessa staði í Sviss en þeir hefði gert ef þeir hefðu bara átt að lesa og læra úr bókinni eins og venjan  er. Og verkefnið skilaði líka góðum einkunnum.

Ég lét gera verkefnið í nóvember 2007 í Menntaskólanum við Sund

 
Höfundur: Ingeborg Breitfeld

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is