www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Þögul kennsla

Þögul kennsla er mjög óvenjuleg kennsla og felst í því að kennarinn er fyrir framan bekkinn og kennir án þess að segja orð og nemendur þurfa að finna út hvað hann er að fjalla um. Kennarinn þarf að leika og skrifa á töfluna það sem hann er að kenna. Best er að kennarinn sé að fara yfir efni sem áður hefur verið fjallað um.
Hægt er að vera t.d. með verklega sýnikennslu og láta nemendur skrá niður og/eða segja frá því sem kennarinn gerði og hvers vegna hann gerði það.

Ein leið er að kennarinn segir ekkert nema að hann ætli ekki að segja neitt (þögul kennsla) og hann afhendir nemendum umslög með leiðbeiningum sem búið er að rugla og nemendurnir þurfa að finna út hvernig á að raða þeim saman og hvað þeir eigi að gera. Kennarinn sest svo niður og segir ekki orð á meðan nemendurnir eiga að finna út hvað þeir eiga að gera.

Þögul kennsla er mjög fjölbreytt og er þess vegna áhugaverð. Hægt er að útfæra hana á ýmsan hátt með nemendum á ýmsum aldri.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is