www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Þemakort

Þetta verkefni tengist hugtakakorti og snýst um að láta nemendur teikna eins konar kort af þemanum sem unnið er með eða söguþráð í bók. Kortið er eins konar könguló þar sem meginefnið er í miðjunni (t.d. nafn bókar) og angar í allar áttir fyrir hvert efni (t.d. persónur, sögusvið, tímarás). Hægt er að nota þessa aðferð í bókmenntakennslu, tungumálum og öllum lesgreinum.


Með því að hafa svona kort fyrir framan sig t.d. þegar nemendur lesa bókmenntasögu eða erlenda skáldsögu þá eiga þeir auðveldara með að fylgjast með atburðarás og átta sig á þeim persónum sem koma fyrir í sögunni.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is