www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Texti klipptur niður í búta

Texti sem unnið er með er ljósritaður á blað og klipptur niður strimla þar sem 1-2 setningar eru á hverjum strimli. Hver nemandi fær eina setningu eða línu þar sem búið er að bæta við 2-3 orðum framan við frá setningunn á undan. Sá nemandi sem fékk fyrstu setninguna les sína setningu og allir verða að hlusta mjög vel því að sá sem fékk næstu setningu heldur svo áfram að lesa og þannig koll af kolli þangað til búið er að lesa allan textann.

Hægt er að nota þetta í bókmenntum, lestrarkennslu, tungumálakennslu, samfélagsgreinum eða annars staðar þar sem unnið er með texta.

Dæmi um hvernig setningum er skipt á blaðstrimla:
Setning 1: Hrafnkell lagði það í vanda sinn að ríða yfir á heiðar á sumarið.
Setning 2: …á sumarið. Þá var Jökulsdalur albyggður upp að brúm.
Setning 3:  …að brúm. Hrafnkell reið upp eftir Fljótsdalsheiði og sá, hvar eyðidalur gekk af Jökulsdal.
Setning 4: …af Jökuldal. Sá dalur sýndist Hrafnkatli byggilegri en aðrir dalir, þeir sem hann hafði áður séð.

Með því að láta alla nemendur hafa sína setningu þá fylgjast þeir mjög vel með og bíða eftir að þeirra setning komi því að þeir vita ekki hvenær röðin kemur að þeim. Gæta verður þess að hafa þetta ekki of lengi, sérstaklega ef hópurinn er stór en það fer líka eftir aldri nemenda hversu lengi þeir hafa úthald í að hlusta. Hægt er að skipta lestrinum niður á fleiri en einn tíma.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is