Þessi aðferð fjallar um próf og undirbúning fyrir próf.
Margir nemendur nota ekki þann tíma sem þeir hafa til að lesa fyrir próf. Þeir eiga oft erfitt með að draga aðalatriði úr lesefninu og eyða of miklum tíma í að lesa textann í stað þess að glósa niður aðalatriðin úr lesefninu.
Sumir kannast við að hafa búið til svindlmiða til að hafa með sér í próf og þegar í prófið var komið þá þurftu þeir ekki að nota svindlmiðann vegna þess að þeir kunnu hann utanbókar. Með því að leyfa nemendum að búa til ,,svindlmiða” sem þeir taka með sér í prófið þá læra nemendur að taka út aðalatriðin og skrá þau á eitt blað (t.d.A4) sem þeir svo koma með í prófið. Nemendur skila svo svindlblaðinu með prófúrlausnunum og hluti af einkunn er svindlblaðið. Það geta kennarar notað til að meta hvort að nemandi kunni að finna aðalefnið í lesefninu.
Margir hafa notað þessa aðferð og hún hefur gefið góða raun. Einkunnir hækka verulega þegar nemendur fá að taka með sér svindlblað en á móti kemur að nemendur leggja mikla vinnu í að koma sem mestu efni á blaðið og það verður til þess að þeir lesa námsefnið vel og þekking þeirra eykst því í samræmi við það. |