Þessi aðferð er gagnleg þegar umræður taka langan tíma og það þarf að taka saman meginatriði úr umræðunum, ekki bara það sem kennarinn sagði í lok umræðnanna.
Nemendur eru beðnir um að teikna tvær eða þrjár skýringarmyndir sem sýna ólíkar áherslur í umræðunum. Þetta er afar einföld aðferð en það kemur á óvart hversu gagnleg hún er, sérstaklega í lok umræðnanna. Ef lausnin í umræðunum leiðir til nýrrar þekkingar eru nemendur líklegir til að missa þráðinn ef þeir hafa enga heildarmynd af viðfangsefninu. Með því að gera skýringarmynd af umræðunum geta nemendur betur tengt nýja viðfangsefnið við fyrri þekkingu.
Mind Manager (hugarkort) er gagnlegt forrit við slíkar skýringarmyndir þar sem nemendur geta skráð niður og teiknað lýsandi myndir og texta af því sem fram kom í umræðunum.
Þeir nemendur sem eru óöryggir skilja oft ekki alveg niðustöður umræðnanna. Þess vegna er svo mikilvægt að kennarinn leggi áherslu á gildi umræðnanna og á umræðurnar sjálfar. Að það sé engin ein lausn strax og þeir nemendur sem geta dregið saman niðurstöðurnar eru líklegri til að skilja efnið betur. |