Þessa aðferð notaði ég þegar ég var að kenna 6 ára börnum að láta stafina standa á línunni.
Ég sagði börnunum sögu um risaeðlu og krókódíl sem borðuðu stafi sem væru ekki á línunni. Ég teiknaði risaeðlu við enda línunnar sem var með kíki og skoðaði hvort stafirnir sætu ekki alveg örugglega á línunni. Ég teiknaði líka krókódíl undir línuna sem skoðaði hvort að stafirnir færu niður fyrir línuna.
Börnin sátu mjög áhugasöm og hlustuðu á söguna og biðu spennt eftir teikningunni. Þau vönduðu sig mjög mikið og voru ekki fljótfær. Þau sögðu að þetta hefði verið skemmtilegt. |