www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Skífurit

Þessi hugmynd byggir á að nemendur gera skífurit til að skipuleggja og flokka viðfangsefnið. Það örvar hugsun og hvetur til umræðna þar sem nemendur þurfa að meta og mæla tengsl mikilvægra þátta í viðfangsefninu.

Kennarinn lætur nemendur velja orð/hugtök af lista sem þeim finnst mikilvægust í viðvangsefninu. Kennarinn getur einnig verið búinn að velja mikilvægustu þættina og látið nemendur hafa lista t.d. með 5 orðum (sem eru mikilvægust). Nemendur eiga svo að búa til skífurit þar sem þeir setja orðin inní og hafa skífurnar(kökurnar) fyrir hvert orð í þeirri stærð sem þeim finnst hæfa miðað við mikilvægi orðsins/hugtaksins. Þeir þurfa svo að rökstyðja hvers vegna þeir skipta skífuritinu svona niður og hvernig meginhugtökin tengjast öðrum hugtökum og setningum í námsefninu.


Dæmi um skífurit í sögu.mskifurit


Þetta verkefni er gott að vinna með í hóp og láta nemendur ræða og koma sér saman um hvernig skífunni er skipt niður. Einnig má láta nemendur vinna þetta verkefni hver og einn og þá koma ólíkar hugmyndir fram. Nemendur þurfa þá að gera grein fyrir sinni mynd og þá verða oft gagnlegar umræður í bekknum.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is