Í þessu verkefni eru nemendur látnir um að flytja upplýsingar frá einu verkefni eða atviki yfir á annað.
Nemendur fá upplýsingar um eitthvað sem þeir vita um og aðrar upplýsingar um eitthvað sem er nýtt fyrir þeim. Þá eiga þeir að skrifa sögu eða frásögn þannig að þessi tvö atriði tengist.
Dæmi um slík skrif gæti verið eftirfarandi:
Kennarinn segir við nemendur:
-,,Ímyndið ykkur að í lófa mínum sé atóm. Við skulum kalla það Aron. Gerum ráð fyrir að fyrir milljón árum hafi Aron verið inní grasi á jörðinni”.
Kennari biður svo nemendur að skrifa sögu Arons síðustu milljón árin. |