www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Að bæta inn í setningar (kommur)

Þessi aðferð sýnir hvernig hægt er að kenna nemendum um greinarmerki (kommur) í setningum.

Kennarinn skrifar stutta og einfalda setningu á töfluna, t.d. Siggi var seinn. Síðan skiptir hann setningunni í tvennt: Siggi / var seinn. Nemendur (hver og einn) bætir svo við hvorn hluta setningarinnar.

Dæmi :


Bætt við fyrri hlutann:
Siggi

Bætt við seinni hlutann:
var seinn

Siggi, bróðri minn,

var of seinn

Siggi, sem hafði sofið yfir sig,

var of seinn í skólann

Þegar Siggi heyrði í bjöllunni, áttaði hann sig á því

að hann var orðinn of seinn í skólann

Þannig sjá nemendur hvernig komman er tilkomin, þ.e. þegar hluta er bætt inní setningar, ekki bara þegar lesandinn þarf að ,,stoppa og anda”. Þetta undirstrikar að komman hefur einhverja merkingu eins og önnur greinarmerki.

Reynsla kennara hefur sýnt að nemendum tekst betur að átta sig á greinarmerkjum þegar þeir búa til setningarnar sjálfir.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is