Nemendum líður oft illa og finna vanmátt sinn í blönduðum hópi barna.
Það sem ég gerði var að taka nemendur sem þurfa mjög mikla aðstoð úr hópnum og lét þá vinna saman í litlum hópi 4-5 nemenda. Ég skipulagði námið fyrir hvern og einn og í framhaldi vissu nemendurnir hvað þeir áttu að gera í hverjum tíma. Þeir fengu þá nám við hæfi.
Þetta gekk vel, nemendur gátu samsvarað sig öðrum og gátu jafnvel verið betri en einhver annar. Þeir unnu miklu betur og voru oft að vinna sigra en ekki að tapa. Þeir voru ekki lengur lélegri en allir aðrir.
|