www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Samstæðuspil

Þetta verkefni er eins og samstæðuspil sem margir þekkja úr leikskóla og yngri barna kennslu.

Kennarinn býr til spjöld með setningum, orðum eða hugtökum sem fjallað er um og gerir tvö spjöld sem passa saman.

Dæmi um spjöld gætu verið málfræðiendingar, nútíð-þátíð, erlend orð (ísl-enska), borg-land, tæknileg heiti í eðlisfræði/efnafræði/líffræði, andstæður o.fl.

Nemendur eiga svo að leggja spjöldin á hvolf á borðið og draga tvö í einu. Ef þau eru samstæð þá fær hann spjöldin en ef ekki þá eru þau lögð á hvolf aftur og næsti keppandi gerir. Sá sem er með flest spjöld þegar öll spjöldin eru farin af borðinu er sigurvegari.

Þennan leik þekkja margir úr leikskóla og hægt er að kaupa svona spjöld með margvíslegum myndum fyrir yngri börn. En fyrir eldri nemendur er auðvelt að búa til svona spjöld með texta eða efnisatriði úr námsefninu. Spjöldin er svo hægt að nota aftur og aftur og krakkar á öllum aldri hafa gaman af spilum.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is