www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Póstkassi

Kennarinn býr til nokkrar spurningar um viðfangsefnið, spurningar þar sem líkur eru á mismunandi svörum þar sem fram koma ólík viðhorf nemenda. Ekki nota spurningar þar sem hægt er að finna eitt rétt svar við. Hver nemandi skrifar niður sitt svar við hverri spurningu, eitt svar á hvert blað. Svarblöðin eru númeruð (með númerinu á spurningunni) og sett í kassa (einn kassi fyrir hverja spurningu). Þegar allir nemendurnir eru búnir að svara spurningunum er nemendum skipt í hópa og hver hópur fær svo einn kassa og skoðar svörin í kassanum. Hópurinn þarf að taka saman svörin, ræða þau og kynna síðan fyrir hinum hópunum.


Þessi aðferð er gagnlega þegar verið er að ræða viðkvæm og umdeild málefni eins og vímuefni eða virkjanir. Einnig er hægt að nota þessa aðferð við ýmsa rannsóknarvinnu í raungreinum. Aðal atriðið er að ekki sé til eitt rétt svar heldur að málefnið krefjist umræðna og vangaveltna. Þessi aðferð er einnig góð þegar ræða á klípusögur í lífsleikni. Sumir kennarar hafa notað þessa aðferð til að kanna þekkingu nemenda áður en nýtt viðfangsefni er rætt. Þá býr kennarinn til spurningar um efnið, hver og einn nemandi  svarar og setur hvert svar í einn kassa. Kennarinn skiptir svörunum á milli hópanna og hóparnir kynna stuttlega svörin við hverri spurningu.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is