www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Óróleiki í kennslustund

Í lífsleikni 1. bekk er þannig háttað í okkar skóla, að það eru 3 kennslustundir í  viku, tvær samliggjandi og ein stök.  Einn bekkur sem ég kenndi sýndi mjög ólíka hegðun eftir því hvort um var að ræða samliggjandi kennslustundirnar eða þá stöku.  Í samliggjandi tímum voru þau róleg, vinnusöm og að flestu leyti til fyrirmyndar, en í stöku tímunum var mjög erfitt að fá vinnufrið. Skvaldur, losung og jafnvel framígrip einkenndu þær kennslustundir.   Þetta var orðið mjög erfitt ástand og fannst mér lítið gagn af þessum stöku tímum. 

Eftir einn slíkan tíma hitti ég rannsóknarhópinn minn í starfendarannsókninni og sagði þeim frá þessum erfiðleikum í þessum tilteknu tímum.   Málið var rætt stuttlega, en þar kom fram sú ágæta tillaga um að ég ræddi við bekkinn næst þegar við værum í þessari stofu, lýsti fyrir þeim upplifun minni og spyrði þau hvers vegna þau sýni svona mismunandi hegðun.  Ég ákvað að reyna þetta, án þess a hafa fulla trú á árangri.

Næst þegar ég hitti bekkinn í þessari kennslustund lýsti ég þessari upplifun fyrir þeim.  Þau könnuðust við þetta og sáu þetta alveg sjálf.   Þá spurði ég þau hvort það væri einhver ástæða fyrir þessari mismunandi hegðun, komu þau með ýmsar skýringar s.s. þrengsl í stofunni (við vorum ekki í sömu kennslustofu, minni og þrengri stofa í stöku tímunum), spennu út af því að það nálgaðist helgi,  órólegur tími á undan þessum tíma.  Við ræddum þetta um stund, þar sem ég m.a. gerði þeim grein fyrir hvaða hag þau hefðu af því að bæta hegðun sína, aðallega þann að tímarnir yrðu skemmtilegri.  Einnig bað ég þau að koma með tillögur að úrbótum.  Ekki gátum við skipt um stofu svo að eftir stóð fátt annað en að þau reyndu að bæta hegðun sína.    Það gerðu þau og breyttust þessir tímar umtalsvert til hins betra, eftir þessa umræðu.

Oft er lausnin nær og einfaldari en maður hyggur!  Byggir það fyrst og fremst á því að það var rætt við nemendur og þeim sýnd sú virðing og traust til að koma með lausnina sjálf, því allir höfðu sameiginlegan hag af því.

 
Höfundur: Sjöfn Guðmundsdóttir

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is