Hugmyndin að þessari aðferð kom þegar nemendur glósuðu endalaust eftir kennaranum án þess að velta fyrir sér hvað þeir voru að skrifa niður, þeir skrifuðu bara eftir kennaranum.
Tímanum er varið til þess að nemendur fylla inní glósurnar í stað þess að skrifa upp allar glósurnar. Oftast eru eyður í glósunum þar sem nemendur þurfa að leyta að svarinu/orðinu sem passar inní. Best er að nemendur þurfi ekki að finna lykilorðin (hugtökin) heldur að setja inn orð eins og stærra/minna, hraðar/hægar, jákvætt/neikvætt o.s.frv.
Yfirleitt er eyða þar sem orðið á að vera en einnig er hægt að bjóða upp á valkosti þar sem nemendur geta valið úr nokkrum orðum og sett þau á rétta staði.
Með því að nota þessa aðferð þurfa nemendur að hugsa meira um hvað þeir eru að glósa og skrá niður. |