www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Myndband- leir

Í þessu verkefni er unnið með leir og stafræna myndavél. Nemendur búa til myndband með því að setja saman margar myndir af leirkörlum, eins konar leikþátt.

Hægt er að nota þessa aðferð t.d. til að lýsa söguþræði (bókmenntir), náttúrufyrirbrigði (eldgos), líffræðifyrirbæri (lirfa verður fiðrildi) eða hverju sem hægt er að lýsa á myndrænan hátt.

Nemendur fá í hendur nákvæma verklýsingu (nákvæmari en hér er) en hér má sjá verklýsingu í grófum dráttum:

  1. Verkefnið er ákveðið en það þarf að vera eitthvað sem hægt er að útskýra með hreyfimynd.
  2. Nemendum er skipt í hópa og hver hópur fær hluta af verkefninu (t.d. ákveðinn hluta úr sögu)
  3. Sagan/handritið er skrifað og hópurinn skiptir með sér verkum (handrit, leikmynd, ljósmyndari o.s.frv.)
  4. Leikmunir og persónum eru gerðar úr leir og tekin er mynd fyrir hverja hreyfingu, u.þ.b. 20-40 myndir hjá hverjum hóp
  5. Myndirnar eru settar í tölvu og þeim raðað saman í myndgerðarforriti (t.d. Windows Moviemaker eða Quick Time Pro)
  6. Myndbandið er lagað til, öllum þáttunum raðað saman, sett hljóð o.fl.
  7. Sýning á myndbandinu

Þessi kennsluaðferð tekur töluverðan tíma og krefst ákveðinnar þekkingar kennarans. Nemendur eru mjög ánægðir með svona vinnu og margir hafa áður unnið með hreyfimyndir. Þegar hópurinn er settur saman er ágætt að hafa í huga ólíka þekkingu og getu nemenda þannig að allir fái verkefni við hæfi.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is