Þessi aðferð kemur upphaflega frá stærðfræðinni, þar sem mengi eru notuð til að sýna tengsl á milli hugtaka.
Hægt er að teikna mengin á tveimur stigum. Fyrst teikna nemendur mengi um það sem þeir vita nú þegar og síðan bæta þeir dæmum við myndina.
Best er að útskýra þetta með dæmi:
Tvö mengi A og B. Í mengi A eru kjötætur og í mengi B eru spendýr.
Eru einhver dýr bæði í mengi A og í mengi B? Já, hundar (C)
Eru einhver dýr bara í mengi A (kjötætur) en ekki í mengi B (spendýr)? Já, fálki.
Er hægt að setja annað mengi inn í sniðmengi AB (kjötætur og spendýr) sem er ekki í C (hundar)? Já, tígrisdýr.
Með því að setja hugtök og tengsl þeirra upp á myndrænan hátt eiga nemendur auðveldara með að sjá hugtökin fyrir sér og hvernig þau tengjast. Þannig geta nemendur fundið hvað er líkt og hvað er ólíkt með hlutum, hugtökum eða öðru sem fjallað er um.
|