Þessa aðferð er hægt að nota í ýmsum námsgreinum en hentar kannski best í lesgreinum þar sem unnið er með ný hugtök eða texta.
Nemendur vinna í hópum eða einir sér og finna lykilhugtök í texta sem þeir eru með. Síðan eru unnið með þessi hugtök eða orð, þau eru tengd saman með hugtakakorti eða þau tengt við heiti kaflans eða annað sem hentar. Einnig er hægt að láta nemendur finna ýtarlegri upplýsingar um þessi orð og kynna þau fyrir bekkjarfélögum.
Verkefnið krefst þess að nemendur hugsi um það sem þeir lesa um, ekki bara um lykilhugtök kaflans heldur um skipulag þeirra og hvernig þau tengjast og hvaða skilning nemendur leggja í orðin á sinn eigin hátt.
|