www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Ljóð

Nemendur sýndu ljóðum ekki mikinn áhuga og ég vildi kveikja áhuga þeirra á ljóðum.

Ég fann lagatexta, vinsæl popplög (,,Fjöllin hafa vakað") og benti nemendum á stuðla og höfuðstafi og rím í textunum (hefðbundin ljóð).
Hvað óhefðbundin ljóð varðar þá safnaði ég ljóðum aftan á mjólkurfernum og lét hvern og einn nemenda draga eitt ljóð. Nemendur lásu upp ljóðin fyrir framan nemendahópinn og í sameiningu túlkuðum við hvert og eitt þeirra.

Þetta gekk mjög vel, nemendur sýndu áhuga og urðu jákvæðari að prófa sjálf að yrkja einföld ljóð.

 

 
Höfundur: Þórey Íris Halldórsdóttir

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is