www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Líffræði - föndrað í framhaldsskóla

Ég kenni m.a. nemendum í 1. bekk, félagsfæðibrautar og málabrautar, líffræði. Nemendum mínum finnst almennt líffræði frekar erfitt fag og eiga oft erfitt með að sjá fyrir sér það sem verið er að ræða í líffræðitímum. Sem dæmi má nefna umræður um frumuna og þau frumulíffæri sem er að finna í henni.

Til þess að koma þessu hugtaki betur til skila ákvað ég að taka til pappír (marga liti), lím og skæri og leyfa þeim að föndra aðeins og breyta til frá þessu dæmigerða kennari talar út frá glæru og nemendur “hlusta”. Þarna fá þau að vinna þetta í höndunum, skapa og nota fleiri skynfæri til þess að læra, en bara að hlusta.

Ég hef líka reynt að búa til myndlíkingu samhliða þessu til að fá þau til að nálgast þetta á annan hátt. Fruman er eins og geimskip ;) Öll geimskip þurfa stjórnstöð sem stýrir því sem er að gerast inn í þessu skipi og það er kjarninn í frumunni. Í kringum kjarnann og um alla frumuna er frymisnet en það eru gangarnir í geimskipinu, því þú þarft ganga sem liggja um allt geimskipið til þess að flytja hluti á mili staða. Einnig þurfa geimskip eitthvert orkuver sem knýr geimskipið áfram en það er einmitt hvatberinn o.s.frv. .

Mér hefur þótt þetta takast frekar vel og nemendur eru mjög vel virkir í þessu verkefni og þau eru frekar ánægð að fá að gera eitthvað öðruvísi og vinna með höndunum í afslöppuðu umhverfi en hér vinstra megin má sjá sýnishorn af afrakstrinum.

 
Höfundur: Sólveig Krista

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is