www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Leikræn tjáning og geðraskanir

Í þessu verkefni áttu nemendur að setja sig í hlutverk einstaklings með geðröskun eða aðstandanda. Þeir sem ekki léku áttu að greina geðröskunina samkvæmt alþjóðlegum stöðlum (kennsluefni). Einnig áttu þeir að greina aðferðina sem sálfræðingurinn notaði (kennarinn lék það hlutverk). Leikurinn var tekinn upp á myndband sem horft var á seinna.

Mat
Tímarnir sem fóru í þetta verkefni voru skemmtilegir og lifandi. Það sem kom mér mest á óvart var hve margir nemendur blómstruðu og nutu sín vel við að tjá efnið í leikrænu formi. Ég fékk að sjá nýjar og skemmtilegar hliðar á nemendum.

Ég spurði nemendur um kosti og ókosti verkefnisins miðað við hefðbundna kennslustund.
Hér eru nokkur af svörum nemenda:

  • „Þetta er meira lifandi en að horfa á glærusýningu og námsefnið situr betur eftir.“
  • „Miklu skemmtilegra að gera svona leikþátt – maður heldur frekar athyglinni.
  • „Í venjulegri kennslu stendur bara bunan út úr kennaranum og fer inn um eitt eyrað og út um hitt.“
  • „Það var enginn á MSN eða á Myspace.“
  • „Að fá þetta svona beint í æð áttar maður sig betur á líðan einstaklings.“

 

 
Höfundur: Ívar Rafn Jónsson

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is