www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Kennarafundir

Virkni kennara á kennarafundum
Vandamálið?
Efni kennarafunda tengdust ekki nægilega mikið kennslunni sjálfri.
Á kennarafundum vorum við stjórnendur áður í aðalhlutverkum, kynntum mál með gærusýningum og síðan voru spurningar og umræður. Kennarar gagnrýndu fundina sem þreytandi og að málefnin væru of almenn og tengdust ekki nægilega mikið daglegum verkefnum kennaranna.

Hvað gerðum við?
Með það að markmiði að efla faglegar umræður meðal kennara og auka þátttöku þeirra á kennarafundum ákváðum við stjórnendur í haust að á hverjum kennarafundi kæmu tvö innlegg frá kennurum um starfið í skólanum.  Stjórnendur nota nú meira tölvupóstinn og auglýsingatöflu á Kennarastofu til að koma upplýsingum á framfæri.

Alls hafa tólf kennarar verið með innlegg á kennarafundum í vetur, þar af átta um innra starfið og fjórir um framtíðarmál. Mál um innra starfið sem kennarar hafa fjallað um eru námsferð nemenda til Danmerkur, Námsnetið, mat á virkni nemenda, valgrein sem er norrænt samstarfsverkefni í raungreinum, hugmyndafræði tungumálakennslu, bekkjarkerfið og agamál, reynslan af nýja fyrirlestrarsalnum í íslenskukennslu og evrópskt samstarf sögukennara. Einn kennarafundur var helgaður kynningu á skýrslum um framtíðarmál en en þar var fjallað um skil milli skólastiga, blandað áfanga- og bekkjarkerfi, fjarnám og lotunám. 

Hvernig tókst til?
Ég tel að þessi breyting hafi haft jákvæð áhrif, kennarar eru jákvæðari á fundunum sjálfum og yfirbragðið er léttara. Með virkri þátttöku kennara eykst ábyrgð þeirra gagnvart kennarafundum og tilfinning þeirra fyrir eignarhaldi á þeim vex . Aukin virkni kennara á kennarafundum er einn þáttur í að auka lýðræðislega stjórnunarhætti innan skólans. Þarna miðla kennarar af reynslu sinni til annarra kennara og það styrkir skólann sem námssamfélag.
 
Höfundur: Hjördís Þorgeirsdóttir

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is