www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Keðjuspurningar

Þetta verkefni er hægt að nota í nánast hvaða námgrein sem er með öllum aldurshópum (sem eru læsir) til að auka fjölbreytni kennsluaðferða.

Kennari útbýr spjöld með spurningum og svörum. Á hverju spjaldi er efst svar við spurningu sem er á öðru spjaldi og þar fyrir neðan er spurning úr námsefninu sem verið er að fjalla um. Öll spjöldin eru sett á hvolf og hver nemandi dregur eitt spjald. Fyrsti nemandinn byrjar á að segja hvaða svar hann er með efst á spjaldinu og síðan ber hann upp spurninguna sem er fyrir neðan. Sá nemandi sem er með svar við þeirri spurningu les upp svarið og ber svo fram spurninguna á sínu spjaldi. Þannig gengur þetta koll af kolli þangað til allir hafa sagt sín svör og lesið spurninguna sína.

Stundum kemur það fyrir að fleiri en einn nemandi telur sig vera með rétt svar og þá er tilvalið að hvetja til umræðna og nemendurnir þurfa að rökstyðja hvers vegna þeir telja sig vera með rétt svar.

Reynslan hefur sýnt að nemendum finnst þetta mjög skemmtilegt verkefni og þeir biðja um að fara í þennan leik aftur og aftur. Þá er hægt að nota sömu spjöldin, stokka búnkann og láta nemendur draga ný spjöld. Það reynir þá líka á minnið að muna hvaða svar kom fram síðast. Nemendur keppast svo við að láta þetta ganga á styttri tíma en áður.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is