Þessi aðferð er frá Hrafnhildi íþróttakennara sem kennir í grunnskóla.
Ég læt nemendur vera jákvæð, hvetja eða segja fallega hluti við samnemendur sína í gegnum leiki.
Farið yfir jákvæð orð áður en farið er í leikinn.
Eltingarleikur
- Frelsa með því að hvísla jákvæðu orði í eyra þess sem er klukkaður.
- Frelsa með því að knúsa
Í íþróttatíma
- Nemendur nota jákvæð orð til að hvetja félaga sína a.m.k. 5 orð í tíma og ekki hvetja besta vin sinn né alltaf sama nemandann.
Umræður í lok tímans um hvað þeim fannst að vera jákvætt og um að fá hvatningu.
Það fannst öllum mjög notalegt að láta segja fallega, jákvæða hluti við sig. Þeim leið einnig mjög vel eftir að hafa hvatt eða sagt fallega hluti við samnemendur sína. |