www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Innri og ytri hringur

Í þessu verkefni reynir á að nemendur hlusti og geti sagt frá því efni sem fjallað hefur verið um í námsefninu. Nemendur raða sér í tvo jafnstóra hringi (með sama fjölda nemenda), annar innan í hinum. Þeir sem eru í innri hring snúa útúr hringnum en þeir sem eru í ytri hring snúa inní hringinn. Tveir nemendur standa þá andspænis hvor öðrum. Annar, sem er í innri hring, segir hinum sem er í ytri hring frá einhverju sem nemendur voru að læra um. Hinn hlustar og bætir svo einhverju við það sem hinn sagði. Þeir endurtaka svo það sem hinn sagði. Síðan færa nemendur sig til hægri og þá er kominn nýr nemandi á móti. Þetta er svo endurtekið þrisvar sinnum og alltaf bætist við það sem sagt er. Skammtímaminnið nær varla að halda utan um meira en það sem þrír nemendur segja og því er nóg að skipta þrisvar um félaga.

Á meðan á þessu stendur er mikill hávaði í stofunni enda er helmingur nemenda að tala í einu. Það krefst þess að nemendur einbeiti sér vel að því sem félaginn segir og láti ekki aðra trufla sig.

Með því að nota þessa aðferð að láta nemendur hlusta á samnemendur sína segja frá því sem þeir hafa lært um ákveðið efni þá fá þeir að heyra fjölbreyttari útgáfur af sama efninu. Nemendur segja frá með sínum eigin orðum sem eru oft öðruvísi heldur en orð kennarans eða textinn úr námsbókinni.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is