Nemendur áttu að finna hvað er líkt og ólíkt með hversdagslegum hlut eða fyrirbæri og hugtaki í greininni. Ég notaði verkefnið bæði í efninu um persónuleikakenningu og um ólík meðferðarform í áfanganum SÁL 253.
Hér eru verkefnalýsingar:
Verkefni um persónuleikakenningar:
Svarið spurningunum
Hópaskipting: Einn hvatamaður, tveir hugsuðir, einn ritari og einn fléttari!
Verkefnið:
NÚ ÞARF AÐ HUGSA ÚT FYRIR KASSANN!
Skrifið niður allt sem ykkur dettur í hug!
Gott er að rissa upp mynd til að styðjast við!
- Hvað er líkt og hvað er ólíkt með ísjaka og persónuleikakenningu Freuds?
- Hvað er líkt og hvað er ólíkt með pýramída og kenningu Maslows?
- Hvað er líkt og hvað er ólíkt með blómi og kenningu Rogers?
- Hvað er líkt og ólíkt með félagsnámskenningunni og tölvuleikjum?
- Hvað er sameiginlegt og hvað er ekki sameiginlegt með brúðuleikhúsi og viðhorfi aðstæðuhyggjumanna?
- Hvað er líkt með persónuleikakenningum og draumum?
Verkefni um ólík meðferðarform:
Svarið spurningunum
Hópaskipting: Einn hvatamaður, tveir hugsuðir, einn ritari og einn fléttari!
Verkefnið:
NÚ ÞARF AÐ HUGSA ÚT FYRIR KASSANN!
Skrifið niður allt sem ykkur dettur í hug!
Gott er að rissa upp mynd til að styðjast við!
Þetta er keppni – þeir sem eru fljótastir að finna fimm atriði við hvern lið VINNA!!!
- Hvað er líkt og hvað er ólíkt með leiðréttingarforritinu PÚKA og hugrænni atferlismeðferð?
- Hvað er líkt og hvað er ólíkt með gröfu og sálgreiningu?
- Hvað er líkt og hvað er ólíkt með leir og atferlismeðferð?
- Hvað er líkt og ólíkt með kerfisbundinni ónæmingu og stiga?
- Hvað er sameiginlegt og hvað er ekki sameiginlegt með lyfjameðferð og vélastillingu í bifreiðum?
- Hvað er líkt og ólíkt með leik (t.d. í bíómynd) og gagnúð?
Mat
Þetta verkefni skapaði mjög sérstaka stemningu í bekknum. Allir voru bókstaflega á kafi við að hugsa, fletta upp í bókinni og „pæla“. Svörin voru hvorki frá mér né beint upp úr kennslubókinni. Þau urðu að finna tengingarnar hjá sér, sem kallaði fram sköpun og frumleika í nálgun á viðfangsefninu. Ég fann fyrir metnaði hjá nemendum í að reyna að skilja kenningarnar áður en þeir tengdu efnið við hluti úr hversdagsleikanum. Þeir nálguðust kennslubókina með öðrum hætti en áður. Þeir leituðu eftir meiri dýpt frekar en að fletta svörunum upp og afrita eins og mörg verkefni fram að þessu höfðu krafist, eða eins og einn nemandinn orðaði það: „Þú færð þetta ekki beint í æð, þarft að pæla í kenningunum og koma eigin orðum að þeim – ekki bara ‚copy‘ og ‚paste‘ og því man maður efnið betur.“
Dæmi um verkefnalausnir:
Hvað er líkt og hvað ólíkt með persónuleikakenningu Freuds og ísjaka?
Líkt: Mannshugurinn er eins og ísjaki þar sem aðeins lítill hluti skagar upp úr og táknar meðvitaða reynslu en stærsti hlutinn er undir yfirborðinu og táknar dulvitundina.
Ólíkt: Ísjaki er klaki, kenning er kenning. Ísjakinn verður til úti á hafi, kenning verður til í heila. Þú getur séð kenningu skrifaða niður á blað en þú sérð bara efra borð á ísjaka. Persónuleikinn er lifandi en klakinn ekki.
Hvað er líkt og hvað ólíkt með leir og atferlismeðferð?
Líkt: Það er hægt að móta leir með höndunum og manneskju með atferlismeðferð. Hvort tveggja er notað af fólki. Þú getur búið til stressbolta úr leir til að draga úr streitu eins og atferlismeðferð á að gera.
Ólíkt: Leir er áþreifanlegur en ekki atferlismeðferð. Það er hægt að borða leir en ekki atferlismeðferð.
Hvað er líkt og hvað ólíkt með vélarstillingu og lyfjameðferð?
Líkt: Vélarstilling er til að stilla bílinn og lyfjameðferð er til að „stilla“ manneskju. Það eru bæði sérfræðingar sem sjá um vélarstillingu og lyfjameðferð. Lyfin hafa áhrif á miðtaugakerfið en vélarstillingin áhrif á „miðtaugakerfið“ í bílnum. Hvort tveggja er inngrip.
Ólíkt: Lyfjameðferð tekur lengri tíma. Maður verður skítugur á að stilla vél en ekki á því að veita lyfjameðferð. |