Þetta er stuttur leikur sem margir kannast við sem hvísl-leikur, þar sem orð gengur mann af manni. Nemendum er skipt í nokkur lið (3-4 lið) og hvert lið raðar sér upp í röð. Annar endi liðsins er hjá kennaranum og sá sem er á hinum endanum er með blað í blýant. Kennari lætur þá nemendur sem eru fyrstir í hverri röð hafa blað með nafni/hugtaki eða öðru sem verið er að fjalla um, og þegar hann segir NÚ þá eiga nemendurnir að hvísla orðinu áfram þangað til það er komið á hinn endann á röðinni. Sá sem er þar á endanum á að skrifa niður það orð sem hann fékk og afhendir kennaranum það, sem metur hvort að orðið sé rétt. Hóparnir fá svo stig fyrir rétt orð og einnig er hægt að gefa stig fyrir að vera fyrstur til að láta orðið ganga.
Hægt er að hafa gott bil á milli nemenda þannig að þeir þurfi jafnvel að standa upp og færa sig til að næsta nemanda.
Þetta er skemmtilegur leikur sem tekur ekki mikinn tíma og nemendum finnst gaman að brjóta upp hefðbundna kennslu með keppnisleikjum.
Leikurinn hentar vel í yngstu bekkjum grunnskóla og leikskóla, en einnig má brjóta upp kennslu hjá eldri nemendum með stuttum, skemmtilegum leik. |