www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
,,Hvað á ég að gera næst?"

Flestir kennarar kannst við vandamálið að láta alla nemendur hafa verkefni við hæfi. Þegar nýtt verkefni er lagt fyrir nemendur þarf að huga að þeim sem eru fljótir að vinna og þeim sem eru seinir að vinna.
Sumir nemendur eru alltaf búnir langt á undan hinum og þá er gott að hafa einhver verkefni fyrir þá til að vinna við í lok tímans. Hér eru nokkrar tillögur sem ég og fleiri kennarar hafa notað. Gott er að hafa kassa með spjöldum þar sem eitt verkefni/tillaga er á hverju spjaldi og nemendur geta þá dregið eða valið sér verkefni. Verkefnin þurfa að vera skemmtileg og/eða eftirsóknarverð.

  1. Skrifa sögu, ljóð eða bréf
  2. Lesa bók
  3. Teikna mynd
  4. Spila
  5. Búa til leikbrúðu
  6. Skrifa blaðagrein
  7. Púsla
  8. Fara í krók eða aðra stofu
  9. Vera aðstoðarkennari
  10. Fara yfir eða flokka blöð.
  11. Fara á bókasafn (með bókasafnspassa)
  12. Vinna í tölvu
  13. Vinna að sérstöku verkefni
  14. Taka til á borði, hillum eða í stofunni
  15. Vinna gagnleg verkefni eins og heimavinnu eða áætlunarvinnu
  16. Aðstoða annan nemandi við ákveðið verkefni
  17. Skoða myndabækur, Syrpu eða aðrar bækur í skólastofunni
  18. Lesa dagblöð eða tímarit
  19. Búa til teiknimyndasögu
  20. Búa til auglýsingu
  21. Skrifa veðurfrétt/lýsingu
  22. Skrifa íþróttafrétt
  23. Teikna landakort
  24. Leysa skemmtilegar þrautir í stærðfræði
  25. Leira
  26. Hlusta á sögu eða tónlist (með heyrnatól)
  27. Búa til listaverk
  28. Búa til auglýsingaborða (banner)
  29. Vinna við fréttablað bekkjarins


Með því að hafa á hraðbergi verkefni sem nemendur geta valið sér er auðveldara fyrir kennarann að hafa sama verkefni fyrir alla og þá geta þeir nemendur sem eru fljótir að vinna fundið sér annað að gera án þess að trufla hina.

 
Höfundur: Eygló Sig.

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is