www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Hvað er á myndinni?

Þetta verkefni er hægð að nota sem innlögn eða kveikju í ýmsum námsgreinum.

Kennarinn er með 3 skyggnur (PowerPoint) og á fyrstu myndinni er búið að hylja stóran hluta myndarinnar. Nemendur eiga að giska hvað sé á myndinni, en myndin er án texta og tengist á einhvern hátt því sem fjalla á um. Á næstu mynd sést aðeins meira af myndinni og nemendur halda áfram að giska og á síðustu myndinn sést öll myndin. Þetta krefst þess að nemendur leiti í þekkingarbrunni sínum og skoði hvort að þeir kannist við einhvern hluta af myndinni eða eitthvað sem þeir geta tengt hana við. Þegar þeir giska þurfa þeir að færa rök fyrir því hvers vegna þeir giska á þetta og þá spinnast oft upp ýmsar umræður.

Þessa aðferð er hægt að nota í ýmsum námsgreinum, til dæmis. eðlisfræði, líffræði, sögu, landafræði, náttúrufræði o.fl

 

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is