Nemendur eiga oft erfitt með að gera sér grein fyrir eigin þekkingu og eigin námi. Til að auðvelda þeim að gera sér grein fyrir hvað þeir vita um námsefnið er hægt að láta þá búa til hugtakakort.
Margir kennarar og aðrir nota mikið hugtakakort í starfi sínu, bæði við hugmyndavinnu og alla skipulagningu. Hægt er að láta nemendur búa til hugtakakort í upphafi náms, áður en kennari leggur inn nýtt efni og svo annað í lokin þegar fjallað hefur verið um efnið. Nemendur geta svo skoðað muninn á hugtakakortunum og þannigð séð hversu mikið þeir hafa lært um efnið.
Reynsla kennarara sem hafa notað þessa aðferð er að nemendur fara að hugsa um hvað þeir vita um efnið/hugtökin og skrá niður eigin þekkingu. Það hvetur þá til að íhuga og velta fyrir sér hvað þeir vita um efnið. Þegar nemendur bera svo saman hugtakakortið sem þeir gerðu í upphafi við það sem þeir gerðu í lokin þá gera þeir sér betur grein fyrir hvað þeir höfðu í raun og veru lært á tímabilinu.
|