Í þessu verkefni eiga nemendur að ræða hugmynd sína, fyrst með öðrum nemanda og síðan í hópnum. Það eru til nokkrar útgáfur af þessari aðferð en hún hefst alltaf á því að hver og einn hugsar og skráir hugmyndir hjá sér það sem þeir vita um viðfangsefnið eða þær hugmyndir sem þeir hafa um efnið. Síðan vinna saman tveir og tveir og koma sér saman um niðurstöðu útfrá hugmyndum sínum. Að lokum ræður bekkurinn saman um hugmyndirnar og koma sér saman um nokkur atriði sem allir eru sammála um.
Sem dæmi má nefna:
1. Hugsa: Hver og einn punktar niður hjá sér 5 atriði um viðfangsefnið (5 mínútur)
2. Para: Tveir nemendur ræða og skrá niður 4 atriði (4 mínútur)
3. Deila: Bekkurinn tekur saman 3 atriði sem aðalatriði viðfangsefnisins (3 mínútur)
Þessa aðferð hafa margir notað til að fá nemendur til að hugsa og koma með hugmyndir og til að kenna nemendum að deila hugmyndum og ræða við félagana um sína hugmynd. Við getum aðeins lært af öðrum ef við höfum tækifæri til að hugsa um viðfangsefnið og ræða um hugmynd okkar við aðra.
Það getur verið gagnlegt að spyrja nemendur hvernig upphaflega hugmynd þeirra fellur að hugmynd hópsins |