Þetta verkefni byggir á að nemendur búa til stóra bók sem inniheldur gagnvirk verkefni (pop-up), myndir og þrautir sem lesandinn getur skoðað og leyst þrautir og gátur. Svipaðar bækur hafa verið gefnar út á Íslandi (t.d. sjóræningjabók, prinsessubók og drekabók). Hægt er að láta hvern nemanda eða nemendahóp gera eina blaðsíðu og úr verður ein stór bók bekkjarins. Einnig er hægt að láta hvern hóp gera eina bók eða jafnvel hvern nemanda eina bók en þá tekur verkefnið lengri tíma.
Dæmi um verkefni (blaðsíðu) í bókinni gæti verið umslag sem hægt er að opna og í umslaginu er þraut eða frásögn, pop-up mynd, getraun, lítil bók t.d. orðabók, flipi til að lyfta upp, hreyfimynd eða landakort. Kennarinn getur líka látið nemendur koma með hugmyndir um hvað hægt er að setja inn í svona bók. Verkefnin í bókinni þurfa á einhvern hátt að tengjast því viðfangsefni sem fjallað er um.
Hægt er að gera slíka bók í ýmsum námsgreinum s.s. samfélagsfræði, náttúrufræði, sögu, tungumálum og íslensku.
Að gera svona bók hefur oft verið notuð í þemavinnu og einnig er sniðugt að blanda árgöngum og láta nemendur á ólíkum aldri búa til svona bók. Eldri nemendur geta þá kennt þeim yngri ýmsar aðferðir og hugmyndir. Ef bókin er mjög stór og þykk er hægt að festa hana saman með gardínuhringjum.
Svona bækur hafa oft verið gerðar í söguaðferðinni (story-line) og þá vinnur hver hópur eina blaðsíðu í bókina. |