www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Er það mögulegt?

Í þessu verkefni eru nemendur spurðir spurninga sem hefjast á: Er mögulegt að...?

Dæmi:
Er mögulegt að keyra framhjá Egilstöðum þegar þú ferð frá Reykjavík til Borgarnes?
Er mögulegt að drekka vatn úr glasi þegar þú stendur á haus?

Reynið að forðast spurningar þar sem svörin innihalda staðreyndir. Best er að spurningarnar krefjist umræðna og íhugunar þar sem nemendur þurfa að finna út svarið í sameiningu.

Hægt er að bæta við spurningunni: Ef þetta er mögulegt, hvernig er það þá gert?
Einnig er hægt að láta nemendur í hópum búa sjálfa til Er það mögulegt-spurningar og hóparnir skiptast svo á spurningum og svara þeim.

Þessi aðferð hvetur nemendur til að hugsa sjálfir og velta fyrir sér ýmsum möguleikum.

 

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is