www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Eftir frímínútur

Vandamálið var að eftir frímínútur voru nemendur oft æstir og það var erfitt að ná þeim niður eftir frímínútur. Það fór oft mikill tími af kennslustund eftir frímínútur í að ræða einstök atvik úr frímínútum.

Ég hengdi bók upp á vegg þar sem nemendur gátu skrifað um uppákomurnar og ágreiningsefnin úr frímínútunum. Þar þurfti að skrifa undir nafni. Í umsjón, sem í lok hvers dags, þá voru atvikin rædd og reynt að finna lausn á vandamálunum.

Fyrst í stað var mikið skrifað en þegar á leið voru nemendur komnir vel á veg með að leysa ágreiningsmálin sjálfir.

 

 
Höfundur: Kennari í 4.bekk Sjálandsskóla

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is