www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Bókasafnskennsla

Rannsókn á eigin starfi á Bókasafni Menntaskólans við Sund

Ákveðið var að skoða þann þátt starfsemi Bókasafnsins sem snýr að útlánum kennsluefnis til nemenda með fyrir augum að fækka vanskilum. Bókasafn MS leggur sig fram um að eiga allt kennsluefni sem ætlað eru til kennslu hverju sinni og eru útlánareglur einfaldar, efnið er lánað í eina kennslustund eða til notkunar á safninu og þurfa nemendur að skrifa sig fyrir láninu á þar til gert blað og merkja síðan við sig þegar þeir skila. Á hverjum morgni eru svo send SMS-skilaboð í gegnum vef Símans til þeirra sem eru í vanskilum frá deginum áður og um leið eru þeir skráðir á sérstakan athugasemdalista þar sem fram koma allar upplýsingar um þá nemendur sem skila ekki á réttum tíma. Einnig var ákveðið að taka á umgengni nemendanna á safninu sem mjög er ábótavant.
Til að taka þetta fastari tökum var hert á reglum. Litir gefa skýr skilaboð svo það voru útbúnir litaðir miðar með reglum Bókasafnsins, sbr. gula spjaldið og rauða spjaldið í íþróttaleik skv. eftirfarandi:

Við fyrsta útlán fá nemendur GRÆNAN miða þar sem reglur bókasafnsins koma fram og það áréttað að þeir sem fari ekki eftir reglum eiga það á hættu að verða útilokaðir frá því njóta þessarar þjónustu.

GULAN miða fær nemandi ef hann skilar of seint, þar stendur:  Aðvörun - Þú hefur brotið reglur bókasafnsins um afnot af kennslugögnum. Vinsamlegast athugaðu að við ítrekuð brot verður þú útilokaður frá því að fá kennslugögn lánuð.  Það eru takmörk fyrir því hversu oft þau „mega/geta“ fengið gulan miða og var miðað við tvö skipti áður en rauða spjaldið er afhent en skoða þarf hversu langur vanskilatíminn hefur verið eða hvort brotið hafi verið af sér, t.d. með því að skilja bók eftir í stofu.

RAUÐAN miða fær nemandi sem hefur fengið gulan miða í tvö skipti eða brotið gróflega af sér: Tilkynning – Ágæti nemandi. Vegna ítrekaðra/grófra brota á reglum bókasafnsins um afnot af kennslugögnum neyðist safnið til að útiloka þig frá því að njóta þeirrar þjónustu að fá kennslugögn lánuð.  Útilokunin gildir út önnina.

Til að bæta umgengnisvenjur var ákveðið að útbúa enn einn miðann þar sem stendur að öll meðferð og neysla tóbaks, matar, sælgætis og drykkja sé algerlega bönnuð á safninu og nemandi beðinn um að yfirgefa safnið þangað til hann geti framfylgt þessum reglum.  Þá þurfti og þarf (má ekki sofna á verðinum) að hafa stöðugt auga á þeim og afhenda miðann með reglunum þegar tilefni gaf til þess. 

Niðurstaða átaksins er sú að vanskilum fækkaði um 19% milli ára, úr 959 í 777.  Þessi niðurstaða er fengin með því að bera saman vanskilalistana frá skólaárinu 2006-2007 við núverandi skólaár 2007-2008.
Þar sem harðar var tekið á vanskilum þá fjölgaði þeim sem voru útlokaðir (rauði miðinn) frá kennslubókarlánum úr 22 í 35.
Skilaboðin til nemenda þurfa að vera skýr og einföld og frá fyrsta degi þá skilja þeir um hvað málið snýst (vel flest) og þá stefnir þetta í rétta átt sem er að sjálfsögðu – engin vanskil.

 
Höfundur: Bára Ólafsdóttir

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is