www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Að blanda, finna og para saman
(mingle, match and mate)

Þetta verkefni hentar fyrir alla aldurshópa, en kannski aðallega fyrir yngri börn. Það byggir á að kennarinn útbýr spjöld með t.d. spurningum og svörum, og dreifir spjöldunum á borðin hjá nemendum, eitt spjald á hvern nemanda. Þeir eiga síðan að finna þann nemanda sem er með spjaldið sem passar við þeirra spjald og vinna með þeim nemenda.

Dæmi: (landafræði). Á sumum spjöldum eru nöfn á ám, vötnum, fjöllum, jöklum eða öðrum stöðum á landinu og á hinum spjöldunum stendur t.d. vatn, á, fjall, jökull. Nemendur eiga svo að para saman örnefnin og hvort að það sé fjall, jökull eða annað. Síðan er unnið meira með staðina, þeir fundnir á korti, nemendur skrifa niður staðreyndir um sína staði o.s.frv.

Hægt er að hafa spjöldin þannig að aðeins eitt spjald passi á móti einu spjaldi eða að eitt spjald passi á móti mörgum spjöldum. Dæmi: Jökull passar á móti Vatnajökull, Mýrdalsjökull, Eyjafjallajökull.

Hægt er að láta nemendur sem eru saman í hóp koma upp og segja frá hvers vegna þeirra spjöld passa saman eða segja frá þeirra spjöldum.

Fleiri dæmi: Stærðfræði (almenn brot-tugabrot), tungumál (íslenskt heiti- erlent heiti), yngsta stig (mynd af grunnformi-heiti á grunnformi),

Þessa aðferð má þróa og breyta á ýmsan hátt, allt eftir aldri nemenda og námsgrein. Hún hefur reynst mörgum kennurum vel og nemendur líta á þetta sem skemmtilegan leik. Þessi aðferð hefur verið mikið notuð í yngribarna kennslu.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is