www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Agabrot (viðtöl og eftirfylgni)

Í skólareglum ónefnds framhaldsskóla gilda eftirfarandi reglur um vinnufrið í kennslustundum:

  • Nemendur virði verkstjórn kennara.
  • Nemendur mæti stundvíslega.
  • Nemendur mæti með kennslubækur og önnur námsgögn.
  • Nemendur taki virkan þátt í náminu.
  • Nemendur stilli margmiðlunartæki sín á þögn eða hafi slökkt á þeim.
  • Nemendur nýti fartölvur aðeins til náms í viðkomandi kennslugrein. (www.msund.is)

,,Brjóti nemendur ítrekað reglur um vinnufrið í kennslustundum  kemur til kasta kennslustjóra, sbr. vinnureglur um að framfylgja reglum um vinnufrið í kennslustundum. Umsjónarkennarinn skal ræða við nemandann. Sýni nemandi truflandi hegðun eftir það skal það tilkynnt kennslustjóra sem ræðir við hann og foreldra (forráðamenn) hans sé hann ekki lögráða. Kennslustjóri vísar eftir atvikum máli áfram til rektors."

Það er í verkahring kennslustjóra að ræða við nemendur sem sýna ítrekað truflandi hegðun. Þetta verkefni hefur valdið mér kvíða því bæði hefur vafist fyrir mér hvernig best væri að boða nemendur og ekki síður hef ég haft áhyggjur af því hvernig ég geti gert viðtölin árangursrík.  Í upphafi skólaárs 2007-2008 ákvað ég að leita leiða til að gera viðtölin marktækari og hér á eftir lýsi ég því hvað ég geri.

Ég boða nemendur á hvern þann hátt sem ég tel fljótlegastan; oftast hringi ég í síma þeirra eða sendi sms-boð eða tölvupóst. Aðalatriðið er að ná til nemenda sem fyrst. Samkvæmt vinnureglunum sem vitnað er í hér að ofan ber kennslustjóra að ræða við foreldra ólögráða nemenda. Ég hef farið á skjön við þetta ákvæði á þann hátt að við fyrsta viðtal hef ég látið nægja að tala við nemendurna.

Markmið mitt með viðtölum við nemendur sem spilla vinnufriði er að fá þau að taka upp æskilega hegðun. Ég skýri nemendum frá ástæðu viðtalsins og bið þau um skýringu eða að lýsa atviki frá sínum bæjardyrum. Mikilvægt er að fá nemendur til að tjá sig um hegðun sína og umkvörtunarefni kennara. Vænlegasta leiðin til breyttrar hegðunar í kennslustundum kemur innan frá og viðtölin miðast að því að hjálpa nemendum til að vilja breyta hegðun sinni. Ég reyni að beina nemendum á þá braut að einbeita sér að því sem þau geta breytt og höfða líka til ábyrgðar þeirra gagnvart bekkjarfélögum sínum. Jafnframt reyni ég að fá þau til að ímynda sér hvernig hegðun þeirra komi kennara og bekkjarfélögum hugsanlega fyrir sjónir. 

Eftirfylgnin felst í því að ég sendi tölvupóst á alla kennara nemendanna að fylgjast náið með þeim í tvær vikur eftir viðtalið og upplýsa mig um hegðun þeirra. Jafnframt ítreka ég við nemendur sem eru undir 18 ára aldri að ef kvartað verði yfir þeim aftur þá muni ég boða foreldra með nemendum á fund. Það er tilfinning mín að nemendur vilji síður blanda foreldrum í málið og þau reyna því að bæta hegðun sína. Það er þýðingarmikið að ljúka viðtalinu með niðurstöðu. Niðurstaðan er oftast sú að gera samkomulag við nemendur um eitthvað afmarkað sem þau muni leggja áherslu á að breyta. Þetta “samkomulag” sendi ég kennurum nemendanna.

Eftirfylgnin er ennþá veikur hlekkur. Gjarnan fer allt í sama far með hegðun nemendanna innan hálfsmánaðar. Eigi að síður leiddi átak mitt þess að ég losnaði við kvíðann vegna þessa verkefnis. Ég hef sjálf skýrt markmið með viðtalinu og betur gengur að boða nemendur í viðtal. 

 
Höfundur: Sigurrós Erlingsdóttir

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is