www.kennarasogur.is
Á forsíðu | Um vefinn | Heimildir | PEEL | Starfendarannsóknir | Reynslusögur
Aftur í umræðurnar

Þetta verkefni leggur áherslu á umræður og gengið er útfrá því að nemendur hafi mismunandi skoðanir og geti komist að mismunandi niðurstöðum. Þær niðurstöður geta verið allt aðrar en kennaranum finnst augljósar. Þetta verkefni hefst a.m.k. einum tíma eftir að rætt hefur verið um meginviðfangsefnið. Kennarinn lætur hvern nemanda hafa fullyrðingu/staðhæfingu um eitthvað tiltekið efni sem kom fram í síðasta tíma og biður nemendur um að skrifa ummæli um fullyrðinguna og hvers vegna hún sé mikilvæg. Einnig (ef viðeigandi) að skrifa hvort að nemandinn sé sammála eða ósammála henni.

Þessi vinna krefst þess að nemandinn velti fyrir sér og íhugi umræðurnar í síðasta tíma og skoði hvernig þær tengjast verkefninu í þessum tíma. Þannig læra þeir að tengja saman fyrri þekkingu við það sem verið er að fjalla um í tímanum. Þá læra nemendur líka að taka vel eftir í umræðum þegar þeir vita að unnið verður áfram með sama efni í næsta tíma.

Þegar þessari aðferð er beitt þarf að hafa í huga að umræðurnar dragist ekki á langinn þannig að nemendur verði pirraðir og ráðvilltir og átti sig ekki á meginviðfangsefninu vegna þess að umræðurnar eru komnar út um víðan völl. Kennarinn þarf einnig að varast að leggja oft of mikla áherslu á að draga saman ályktanir og koma með niðurstöðu sem virðist hafa verið fyrirfram ákveðin. Ef það kemur oft fyrir þá velta nemendur því fyrir sér hvers vegna verið sé að láta þá komast að einhverri niðurstöðu sem kennarinn ætlar hvort eð er að segja þeim.
Í þessu verkefni eru umræðurnar mikilvægari en sjálf niðurstaða umræðnanna.

 
Höfundur: PEEL/ers

©Kennarasögur.is - kennarasogur@kennarasogur.is