Að láta nemendur flokka upplýsingar eða hugmyndir hjálpar þeim að skipuleggja nám sitt og skilning. Þá ná þeir að fylla í eyður og að tengja saman efni.
Nemendur búa til töflu og fylla svo inní dálka og raðir sem við á.
Dæmi:
Dýr |
Afkvæmi |
Karlkyn |
Kvenkyn |
Hestur |
Folald |
Hross, klár, |
Hryssa, meri |
Kind |
Lamb |
Hrútur |
Gimbur |
Köttur |
Kettlingur |
Högni |
Læða |
Þetta auðveldar nemendum að skipuleggja hugtök og kemur frekar í veg fyrir að þau gleymi einhverju atriði. Gott að nota þessa aðferð þegar nemendur læra fyrir próf og þá er auðveldara að hafa yfirsýn yfir efnið.
|