Undirstöðuatriði árangursríkrar kennslu

Principles of Teaching for Quality Learning

Upplýsingar um PEEL
Hvað gera PEEL-kennarar?
Vandamál sem kennarar þurfa að glíma við
Undirstöðuatriði í kennslu
Í hverju felst góður námsagi?
Hvað eru slæmar námsvenjur?
Dæmisögur PEEL-kennara
Rannsóknir í skólastarfi
Upplýsingar um vefinn
Heimildir

www.kennarasogur.is

Reynsla PEEL-kennara hefur margoft leitt í ljós að eftirfarandi 12 atriði eru mikilvæg og árangursrík í kennslu. Þessi atriði hafa gengið vel þegar byggja á upp góðan bekkjaranda og að auka skilning nemenda á náminu. Þetta er það sem PEEL-kennarar hafa í huga þegar þeir undirbúa kennslu og á meðan á kennslu stendur.
Hvert atriði er hægt að útfæra á ýmsa vegu, eftir aldri og getu nemenda.

  1. Að deila hæfileikum með nemendum og byggja upp sameiginlegan skilning nemenda.
  2. Að leita að tækifærum til að láta nemendur uppgötva og finna sjálf út hluta (eða allt) af því sem þau eru að læra um, frekar en að láta þau lesa eða heyra um það. Þetta er auðvitað ekki alltaf hægt, en lítil atriði, eins og að láta nemendur skoða mynd af víkingum og láta þá finna út hvernig þeir hafa búið, miðað við það sem þeir sjá á myndinni, vekur nemendur til umhugsunar.
  3. Að bjóða uppá val og sjálfstæða ákvörðun. Nemendur upplifa frelsi ef þeir hafa eitthvað val um hvað þeir vinna og hvernig þeir vinna það. Valið getur verið um hvaða hluta verkefnis sem þau vinna, styrkleika verkefnis (fer eftir getu nemandans) og/eða hvernig verkefninu er skilað (ritgerð, myndasýning, leikrit eða annað).
  4. Bjóða uppá fjölbreyttar kennsluaðferðir sem auka sjálfstæði og sjálfsmynd nemenda. Árangursrík vinna með gagnvirkum umræðum, spurningum, hlutverkaleikjum og skapandi starfi kemur fram í auknu sjálfstrausti og aukinni getu til að glíma við skrifleg verkefni.
  5. Efla umræður sem hvetja nemendur til að rannsaka, íhuga og spyrja spurninga um álitamál. Að spyrja spurninga eins og ,,Hvað ef....?" eykur víðsýni og skapandi hugsun nemenda.
  6. Hvetja nemendur til að læra af spurningum og umræðum annarra nemenda. Virkni og orðræða bekkjarins kemst á hærra stig þegar hugmyndir og umræður eru á milli nemenda heldur en þegar nemandi ræðir við kennara.
  7. Búa til bekkjaranda sem hvetur nemendur til að taka áhættu og koma með nýjar hugmyndir. Nemendur eiga ekki að bíða eftir réttu svari hjá kennara heldur að geta og þora að koma með frumlegar og nýjar hugmyndir án þess að vera niðurlægð eða strítt af öðrum nemendum.
  8. Nota fjölbreytt vitsmunaleg og ögrandi verkefni. Þau krefjast orku og úthalds og það þarf að breyta þeim reglulega til að þau verði alltaf fersk og fjölbreytileiki eykur áhuga nemenda.
  9. Nota kennsluaðferðir sem eru sérstaklega gerðar til að efla árangursríkt nám nemenda. Eitt af því sem PEEL-kennarar hafa að leiðarljósi er að nemendur geri sér grein fyrir hvað séu slæmar námsvenjur og góður námsagi.
  10. Þróa vitund nemenda um hvernig ný þekking tengist fyrri reynslu og að efla skilning þeirra á hvernig þeir geta sett allt námið í samhengi. Mörgum nemendum finnst hlutverk þeirra vera að klára verkefnið og þeir einblína á það sem þeir eru að gera en ekki hvers vegna þeir eru að gera það. Þeim vantar tenginguna og að sjá námið í stærra samhengi.
  11. Ræða reglulega um hugmyndir nemenda um árangursríkt nám og leggja áherslu á að nemendur læri að læra. Nemendur hafa lítinn orðaforða um nám og það getur verið mjög gagnlegt að byggja upp orðaforða þeirra með því að ræða við þau um nám og góðan námsaga.
  12. Stuðla að því að námsmat verði hluti af náminu. Nemendur (og kennarar) upplifa próf og námsmat oft sem nokkurs konar endapunkt á hverju verkefni eða námsönn. Að byggja upp skilning þar sem námsmat er hluti af námsferlinu dregur athygli nemenda frá því sem þau gerðu eða gerðu ekki á prófinu og einnig að nemendur taki ábyrgð á því sem viðkemur námsmatinu. Kennarar þurfa líka að hafa í huga þegar þeir leggja áherslu á fjölbreytt nám að það komi líka fram í fjölbreyttu námsmati.
 
©Eygló R. Sigurðardóttir
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia